Þann 28. október 2004 voru loksins stofnuð samtök um sárameðferð, þau fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Áhugafólk um sárameðferð hafði oft rætt um mikilvægi þess að stofna þverfagleg samtök, en ekkert orðið úr.
Markmið samtakanna, eru að:
Meðferð sjúklinga með sár er oft á tíðum mjög langvinn og erfitt getur verið að beina slíkum sjúklingum í réttan farveg innan heilbrigðiskerfisins.
Mikilvægt er að bæta þekkingu og samhæfingu í meðferð og er það m.a. hlutverk hinna nýju samtaka.
Það er von allra sem áhuga hafa á þessum málum að markmið samtakanna náist og að hið þverfaglega samstarf verði til þess að bæta hag þess fólks, sem glímir við langvinn sár. Jafnframt er mikilvægt að SumS taki þátt í alþjóðlegu samstarfi, m.a. með því að gerast meðlimur í EWMA.