Félagar, munið að láta okkur vita á sums2004@gmail.com ef heimilisfang, netfang og vinnustaður breytist svo við getum haldið áfram að vera í sambandi við ykkur.

21. febrúar 2008

Aðalfundarboð

Aðalfundur SUMS verður haldinn 12. mars n.k. í Hringsal Landspítala (Barnaspítala Hringsins, gengið inn að sunnan).

Venjubundin aðalfundarstörf.

Flutt tvö fræðsluerindi.

29. janúar 2008

Tveir rannsóknarstyrkir

Stjórn SUMS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 100.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð.

Þeir sem áhuga hafa, geta sótt um styrkinn hér á heimasíðunni. Sjá hnapp hér til vinstri.

Umsóknarfrestur er til 1. mars og verða styrkþegar kynntir á aðalfundi SUMS sem haldin verður í Hringsal Landspítala 12. mars n.k.

29. janúar 2008

Aðalfundur SUMS

Aðalfundur SUMS verður haldinn 12. mars í Hringsal Landspítala við Hringbraut.

Nánar auglýst síðar.

24. nóvember 2007

Nýtt netfang SUMS

Netfang SUMS sums@sums-is.org verður lagt niður frá og með 25. nóvember. Stofnað hefur verið pósthólf á gmail og er netfang SUMS sums2004@gmail.com

26. október 2007

Ráðstefnu SUMS 2007 lokið

Þriðju ráðstefnu SUMS er nú lokið. Tæplega 100 manns sóttu ráðstefnuna, fluttir voru mjög áhugaverðir og fræðandi fyrirlestrar, voru gestir mjög ánægðir með fyrirlesarana og fyrirlestrana. Stjórn SUMS þakkar fyrirlesurum þeirra faglega og góða framlag.

Eins og á fyrri ráðstefnum verða fyrirlestrarnir settir inn á heimasíðuna undir Fræðsluefni.

16. október 2007

Frestur framlengdur

Skráningarfrestur á ráðstefnuna hefur verið framlengdur til 18. október

20. september 2007

Skráning hafin

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnu okkar. Tengill á skráningasíðu er efst til vinstri.

16. september 2007

Dagskrá ráðstefnu SUMS 2007

Dagskrá ráðstefnu okkar liggur nú fyrir og opnum við fyrir skráningu í vikunni. Þeir félagar sem eiga eftir að greiða árgjaldið fyrir árið 2007 eru vinsamlega beðnir um að ganga frá greiðslu áður en þeir skrá sig því ekki verður hægt að greiða árgjaldið með þátttökugjaldinu.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest á spennandi ráðstefnu.

Hér má nálgast dagskrá ráðstefnunnar 2007

Ráðstefnugjald:

  1. 5.000 kr. fyrir félaga í SUMS
  2. 9.000 kr. fyrir aðra en félaga
  3. 3.000 kr. fyrir nema

Skráningu lýkur mánudaginn 15. október.

15. ágúst 2007

Tveir rannsóknarstyrkir

Stjórn SUMS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 100.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð.

Þeir sem áhuga hafa, geta sótt um styrkinn hér á heimasíðunni.

Umsóknarfrestur er til loka september og verða styrkþegar kynntir á ráðstefnu SUMS sem haldin verður í Salnum Kópavogi 19. október n.k.

15. maí 2007

Frá EWMA ráðstefnunni í Glasgow

Frá EWMA ráðstefnunni í Glasgow

Nú er nýlokið sautjándu ráðstefnu EWMA og var hún að þessu sinni haldin í Glasgow Skotlandi.

13 íslendingar sóttu ráðstefnuna (þar af 12 hjúkrunarfræðingar)

Glasgow skartaði sínu fegursta veðri ráðstefnudagana og höfðu skotar á orði að annað eins veður hefði ekki komið á þessum árstíma í mörg ár, sól og hiti 15 – 18°C.

Dagskráin var mjög þétt og úr miklu að velja. Í staðinn fyrir langa upptalningu á efninu, vil ég frekar benda ykkur á að hægt er að nálgast úrdrætti úr fyrirlestrum sem fluttir voru, á heimasíðu EWMA.

Á hverri ráðstefnu er gefið út svokallað "Position Document" en þar er tekið fyrir ákveðið málefni hverju sinni, þemað þetta árið er "Topical negative pressure in wound management". Position Document er samþætting og sameiginlegt álit marga sérfræðinga innan sárameðferðargeirans.

http://ewma.org/pdf/may07/EWMA%20Eng%2007%20final.pdf

Notið tækifærið, lítið inn á EWMA síðuna og skoðið þessa pappíra en einnig er hægt að nálgast eldri Position Document á http://ewma.org/english/english.htm ásamt úrdráttum frá fyrri ráðstefnum.

Næsta EWMA ráðstefna verður haldin í Lissabon í Portúgal 14. – 16. maí 2008 og vil ég hvetja sem flesta að sækja þá ráðstefnu, það er mjög fræðandi og gaman að hlusta á alla þessa góðu fyrirlestra, sjá og heyra í öðrum ráðstefnugestum og skoða hvað sýnendur hafa upp á að bjóða.

Hægt er að sjá myndir frá ráðstefnunni undir myndir hér til hliðar.

Jóna Kristjánsdóttir
formaður SUMS

1. apríl 2007

Haustráðstefnan!

Ráðstefna SUMS verður haldin 19. október 2007 í Salnum Kópavogi. Vinsamlega takið daginn frá. !!
1. apríl 2007

Stjórn SumS

Stjórn SUMS hefur komið saman eftir aðalfund og skipt með sér verkum:
Jóna Kristjánsdóttir formaður
Herborg Ívarsdóttir varaformaður
Már Kristjánsson gjaldkeri
Guðbjörg Pálsdóttir ritari og
Karl Logason meðstjórnandi

Elín Ólafsdóttir og Hanna Þórarinsdóttir varamenn.

1. apríl 2007

Aðalfundi lokið

Um 40 manns sóttu aðalfundinn sem haldinn var í Hringsal LSH. 14. mars. Fundarstjóri aðalfundar var Elín H. Laxdal æðaskurðlæknir.
26. febrúar 2007

Aðalfundur 2007

Aðalfundur SumS verður haldinn 14. mars n.k. í Hringsal LSH (Hringsalur er í Barnaspítala Hringsins, gengið inn að sunnan). Venjubundin aðalfundarstörf þar sem tvær lagabreytingar verða lagðar fram. Einnig verða flutt tvö fræðsluerindi.

14. janúar 2007

Ráðstefnu SumS 2006 lokið

Annarri ráðstefnu SumS er lokið og sóttu yfir 100 manns ráðstefnuna að þessu sinni. Erindin voru fjölbreytt og fræðandi, þakkar stjórn SumS fyrirlesurum kærlega fyrir þeirra framlag og ráðstefnugestum fyrir þann mikla áhuga sem þeir sýndu.

Einn nýr styrktaraðili bættist í hóp þeirra sem styðja við bakið á sárasamtökunum, en það er Stoð hf. Eru þeir boðnir velkomnir í hópinn.

3. október 2006

Dagskrá ráðstefnu 2006

Skjal með dagskrá ráðstefnu
27. september 2006

Skráning hafin á ráðstefnu SumS 2006 !!

Nú er mánuður í ráðstefnu SumS sem haldin verður 27. október n.k.

Búið er að opna fyrir skráningu hér á síðunni efst til vinstri.

Dagskráin er í stórum dráttum tilbúin en endanleg dagskrá mun liggja fyrir fljótlega í október.

2. september 2006

Tveir rannsóknarstyrkir

Stjórn SumS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 100.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð.

Þeir sem áhuga hafa, geta sótt um styrkinn hér á heimasíðunni

Umsóknarfrestur er til 15. október og verða styrkþegar kynntir á ráðstefnu SumS sem haldin verður á Hótel Loftleiðum 27. október n.k.

7. maí 2006

Samantekt frá aðalfundi 2006

Aðalfundur SumS var haldinn í blíðskaparveðri á Akureyri þann 17. mars s.l. Um 40 manns sóttu aðalfundinn og hlýddu á fræðsluerindi sem flutt voru að loknum aðalfundi.

Sjá nánar PDF-skjal

22. febrúar 2006

Aðalfundurinn 2006

Nú líður að aðalfundi SumS fyrir árið 2006, sem að þessu sinni verður haldinn á Akureyri.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, verða flutt þrjú erindi um sár og sárameðferð.

3. nóvember 2005

Heiðursverðlaun

Á ársfundi dönsku sárasamtakana eru veittir ýmsir styrkir sem einstaklingum sem vinna við sár og sárameðferð gefst kostur á að sækja um. Einnig veitir fyrirtækið 3M heiðursstyrk árlega, en ekki er hægt að sækja um hann, aðeins að vera tilnefndur til. Í úthlutunarnefnd þess styrkjar situr m.a. Finn Gottrup prófessor sem var gestur okkar á stofnfundi SumS.

30. október 2005

Ráðstefnu SumS lokið

Þátttaka á ráðstefnunni sem haldin var s.l. föstudag, fór fram úr björtustu vonum. Þátttakendur voru kringum 150 manns.

Stjórn SumS þakkar öllum fundargestum kærlega fyrir þennan mikla áhuga og sést það berlega hve mikil þörf er á fræðslu um sár og sárameðferð. Verður það stjórn SumS hvatning til að halda áfram og gera betur.

23. október 2005

Dagskráin

Endanleg dagskrá ráðstefnunnar liggur nú fyrir. Meðal efnis má geta að eftir hádegi verða tveir erlendir fyrirlesarar.

Þær koma báðar frá Danmörku og eru:

14. október 2005

Skráningarfrestur framlengdur !

Ákveðið hefur verið að hafa opið fyrir skráningu á ráðstefnuna til og með 26. október.
11. október 2005

Lokaútkall

Skráningu á SumS ráðstefnuna líkur 15. október.

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig. Látum þetta tækifæri ekki fram hjá okkur fara.

29. september 2005

Loksins, loksins

Dagskrá ráðstefnu SumS (pdf skjal) liggur nú fyrir að mestu leyti. Skráning er hafin (sjá efst til vinstri á síðunni) og stendur til og með 15. október.

Styrktaraðilar SumS verða á staðnum og kynna sínar vörur.

Sjáumst á ráðstefnunni !

8. júlí 2005

Næsta ráðstefna

Búið er að ákveða dagsetningu næstu ráðstefnu SumS. Verður hún haldin á eins árs afmæli samtakanna 28. október n.k.

Félagsmenn takið daginn frá.

7. júlí 2005

Aðild að EWMA

Samtök um sárameðferð er orðinn formlegur aðili að EWMA. evrópsku sárasamtökunum.

Félagar í aðildarfélögum EWMA fá blaðið þeirra EWMA_JOURNAL frítt !! Blaðið er gefið út tvisvar á ári, vor og haust.

Vor blaðið er á leiðinni til okkar og verður sent út til félagsmanna innan skamms. Í blaðinu er m.a. grein um SumS eftir Guðbjörgu Pálsdóttur ritara SumS.

31. mars 2005

Aðalfundur

Aðalfundur SumS var haldinn þann 15. mars s.l. í Hringsal LSH. Um 40 manns mættu á fundinn. Dagskrá aðalfundar var samkvæmt lögum SumS. Varaformaður bauð gesti velkomna og setti fundinn.

1. febrúar 2005

Grein eftir ritara SumS

Guðbjörg Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur, skrifaði greinina "Nyt sårselskab i Island" um undirbúning og stofnun SumS sem birtist í tímariti dönsku sárasamtakanna 4. tbl. 2004 bls. 168-169. Dönsku sárasamtökin gefa blaðið út 4 sinnum á ári.

8. desember 2004

Fyrsti stjórnarfundur

Á fyrsta fundi stjórnar sem haldinn var 8. desember 2004 skipti stjórn með sér verkum þannig:

Í varastjórn:

Aðalheiður tilkynnti að hún þyrfti að hætta í stjórn SumS sökum anna, en hún var að hefja nám að nýju. Þökkum við Aðalheiði frábært samstarf við undirbúning og stofnun samtakanna og óskum henni alls hins besta á nýjum vettvangi.

28. október 2004

Málþing og stofnfundur

Sigurður Guðmundsson landlæknir setti málþingið og bauð gesti velkomna.

Heiðursgestir og fyrirlesarar voru:

Henrik Nielsen framkvæmdastjóri evrópsku sárasamtakanna.

Finn Gottrup skurðlæknir og professor við Háskólann í Óðinsvéum. Hann er formaður dönsku sárasamtakanna og jafnframt ritari í evrópsku sárasamtökunum.

Christine Moffat, hjúkrunarfræðingur og prófessor í London. Fráfarandi formaður evrópsku sárasamtakanna.

Kirsten Müller, hjúkrunarfræðingur, varaformaður dönsku sárasamtakanna.

21. október 2004

Aðdragandi og undirbúningur

Allir sem koma nálægt meðferð sárasjúklinga á Íslandi hafa fundið hversu erfitt getur verið að beina sjúklingi með langvarandi sár í réttan farveg innan heilbrigðiskerfisins. Vel menntað fólk og vel búnar deildir eru fyrir hendi en auka má við kunnáttuna og samræma meðferð.