Félagar, munið að láta okkur vita á sums2004@gmail.com ef heimilisfang, netfang og vinnustaður breytist svo við getum haldið áfram að vera í sambandi við ykkur.

11-06-2010

Fótasáralykill

Fótasáralykill Sáramiðstöðvar LSH sem fjarlægður var 4. mars s.l. vegna breytinga á lyklinum, hefur verið settur inn aftur undir "Fræðsluefni".

Meira
02-05-2010

Stjórn SUMS 2010

Fyrsti stjórnarfundur eftir aðalfund var haldinn 7. apríl s.l. þar sem stjórnin skipti með sér verkum:

Stjórn SUMS:

Er þetta óbreytt frá síðasta ári.

Varamenn eru þau, Bergþóra Karlsdóttir og Karl Logason.

Unnur Þormóðsdóttir gaf ekki kost á sér áfram sem varamaður. Þökkum við henni samstarfið.

Bergþóra Karlsdóttir kemur ný inn og bjóðum við hana velkomna í stjórn SUMS.

Meira
01-04-2010

Þrýstingssár

Tengill frá SUMS inn á vef Landspítala:

Klínískar leiðbeiningar um áhættumat og varnir gegn myndun þrýstingssára.

Sjá nánar undir Fræðsluefni, ýmislegt

Meira
01-04-2010

Loksins, loksins

Þeim vandræðum sem við höfum átt með hýsingu heimasíðu SUMS er nú lokið.

Búið er að fá íslenskan aðila til að hýsa síðuna og er hún nú hraðvirkari en nokkru sinni áður.

Vonandi að hún geti því sinnt hlutverki sínu betur hér eftir.

Meira
05-03-2010

Aðalfundarboð 2010

Aðalfundurinn verður haldinn í Hringsal Landspítala Hringbraut, miðvikudaginn 17. mars og hefst kl. 16:15.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður kynning á Sáramiðstöð Landspítala og tvö fræðsluerindi.

Sjá nánar í dagskrá.

Vonumst til að sjá ykkur öll og takið með ykkur gesti.

Meira
04-03-2010

Leiðbeiningar um greiningu og meðferð fótasára.

Fótasáralykill frá Sáramiðstöð Landspítala hefur tímabundið verðið fjarlægður vegna breytinga.

Meira
26-02-2010

Bilun hjá hýsingaraðila síðunnar erlendis

Heimasíða SUMS hefur verið óvirk í nokkurn tíma vegna bilunar hjá hýsingaraðila síðunnar erlendis. Nú er þetta komið í lag. Biðjumst við velvirðingar á þessu og vonum að þessi bilun hafi ekki valdið ykkur óþægindum.

Framundan er aðalfundur SUMS sem haldinn verður 17. mars kl. 16:15 í Hringsal Landspítala við Hringbraut. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða áhugaverð erindi.

Takið daginn frá !

Meira
03-09-2009

5 ára afmælisráðstefna SUMS

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hóteli 25. september n.k.

Meira
03-09-2009

Ný stjórn SUMS

Stjórn SUMS kom saman í vor og skipti með sér verkum næsta tímabil.

Guðbjörg Pálsdóttir er formaður

Már Kristjánsson varaformaður

Jóna Kristjánsdóttir gjaldkeri

Vilborg Hafsteinsdóttir ritari og

Þórhildur Sigtryggsdóttir meðstjórnandi.

Varamenn: Karl Logason og Unnur Þormóðsdóttir

Meira
13-04-2009

Aðalfundur SUMS 2009

Aðalfundur samtakanna var haldinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 18. mars s.l.

Meira